mánudagur, janúar 10, 2005

Ég er eins og hinn versti Skandinavíubúi...búin að plana árið 2005 og 2006. Ég veit hvar ég verð um jólin 2006!!!!!!!!!!! Þetta er örugglega ekki hollt..........
Átti Krítarferðin ekki að vera núna í sumar annars? Eða eru kannski flestir að beila á þessu? Er verið að pæla í að fara eitthvert annað í staðinn?
Æi, ég fæ líklega svör við þessum spurningum í saumó í kvöld.

föstudagur, janúar 07, 2005

Það er svo gaman að eiga bræður, þeir fá svo marga skemmtilega DVD diska í jólagjöf sem ég fæ ótakmarkaðann aðgang að, og svo fæ ég hinsvegar nytsamlega hluti sem mikil þörf var á hér á bæ. Ég er semsagt búin að liggja og horfa á frábærar myndir allt fríið.
-Sledge Hammer þættirnir, frábær húmor, mesta töffaralögga í heimi en svolítil karlremba. Karlrembur frá 9:unda áratugnum eru samt lúmskt fyndnar og kjánalegar því þær eru ekki vissar um hlutverk sitt í samfélaginu. Það sýndi sig vel þegar Sledge Hammer vildi ekki halda í hendina á öðrum karlmanni þegar hann og fleiri áttu að mynda hring, gretti sig og var með skrípalæti. Svo gerðu hinar löggurnar grín af honum eftirá. Þau sem horfðu ekki á þessa þætti þegar þau voru lítil verða án efa að stúdera þá núna. "Trust me, I know what I´m doing"
-Monthy Python myndirnar. Breskur eðalhúmor, need I say more. Alveg ógeðslega fyndnir. Sérstaklega Meaning of Life þegar feiti gaurinn, sem gubbaði allan tímann, sprakk á veitingahúsinu eftir að þjóninn bauð honum myntulauf í eftirrétt.
-Kill Bill I og II. Ég elska Umu Thurman og ég elska Quentin Tarantino fyrir að hafa skapað þessar persónur og fest þær á filmu í alltof góðri mynd. Kill Bill er ein af þessum myndum sem gerir lífið áhugaverðara og skemmtilegra.
-Indiana Jones safnið. Harrison Ford er sexý í þessu hlutverki og er að takast á við svo spennandi og ógeðslega hluti!
-Pink Panther safnið. Er ekki búin að horfa á þær allar ennþá...er að vinna í því. Líka alveg æðislega fyndnar!

ja þá er ég búin að telja upp flest það sem ég hef verið að glápa á. Ég ætla bara að þakka: Bræðrum mínum, Nóa Síríusi, Egils ölgerðina, stjörnupopp, Maarud, Vífilgelli, Sony og kærastanum mínum til styrktar þessa DVD-maraþons.
Já og GLEÐILEGT ÁR!!!