laugardagur, febrúar 05, 2005

Með hjálp Bibba "tengdafrænda" þá eru loks komnar myndir á bloggsíðuna mína :) Það eru einmitt tvær skemmtilegar myndir af honum hér "living in Kópavogur" og 2 árum síðar "living in 101 Rkv" og sést þar mikill munur á..... hehehe. Ég tek það fram að hann er komin vel í glas núna og hefur því leyft mér að setja þessa þessa hrikalega mynd af honum á Speedo sundskýlu á netið, sem ætti að vera bönnuð börnum innan 35 ára...

Annars ætla ég að reyna að vera duglegri við að blogga því það hefur dvínað undanfarið hjá mér. En fyrst að mér hefur hlotnast sú kunnátta að setja myndir inn á síðuna þá nenni ég kannski að blogga eilítið meira. Ég er nefnilega með svokallað myndrænt minni og hef lítinn áhuga á öðru en því.

Ég er búin að fara á tvö þorrablót og lykta eins og vel úldinn hákarl. Þvílík stemming. Í kvöld var ég á þorrablóti með Breiðfirðingum og öðrum ekta Íslendingum. Það fólk kann að borða sviðakjamma. Ég henti öllu eftir að hafa kroppað í kinnina en þau borðuðu húðina, augun, fituna, kjötið, sinarnar, taugarnar og allt. Þau sugu beinin. Ég vil læra af svona fólki.

2 Comments:

Blogger Tóta said...

Blessuð. Ætlaði bara að láta þig vita að saumakúbburinn sem átti að vera hjá Rebekku í kvöld verður hjá mér í staðinn :) Víðimelur 27, kjallari.
Er sko ekki með símann hjá þér

Tóta

febrúar 07, 2005  
Blogger t. said...

Hæ skan takk fyrir síðast
Flottar myndir af ykkur fjölskyldunni:)

febrúar 08, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home