fimmtudagur, júlí 28, 2005

Ég les Hér og Nú. Sóðaleg "fréttamennska" er bráðfyndin. Stundum koma fréttir um EKKERT; "heyrst hefur að kona nokkur hafi snúist frá búddatrú yfir í lútherstrú eftir að hafa hitt mann sem bar nafnið Lúther. "þetta er rugl og vitleysa" segir hin meinta fyrrverandi búddatrúi Blabla Blabladóttir sem stundar nám við Viðskiptaháskólann í Bifröst, "ég var lútherstrúa áður en ég kynntist Lútheri!"
HVAÐ ER ÞETTA??????!!!!!!!!!??????????!!!!!!!

Þetta ákveðna Hér og Nú blað var án efa með þeim betri því Hér og Nú stelpan var æðisleg! Ég meina eru svona týpur í alvörunni til?!
18 ára stelpa frá Akranesi berbrjósta á brókinni segir "ég er ekkert í skóla því ég er ekta drop-out. Nei er ekkert að gera í sumar nema lifa á kærastanum mínum, hann þénar nóg fyrir okkur bæði". Aðspurð út í næsta vetur: "mig langar svo til Eyja um versló en kærastinn vill bjóða mér til útlanda, ætli við förum ekki til Danmörku, skellum okkur í Kristianíu og höfum það gott þar."

Vá! Næsti vetur hjá henni er Verslunarmannahelgin. Shit! Ég verð að hitta þessa manneskju til að ganga úr skugga um að þetta er ekki bara grín.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home