mánudagur, febrúar 20, 2006

Minningar-Ominningar


Ég fann fjársjóð. Ég fann allar mínar skóladagbækur, bréf og persónulegar dagbækur sem ég hef skrifað öll þau ár sem ég hef getað skrifað. Allt frá sætum barnalegum hugsunum yfir í fyndnar gelgjulegar pælingar. Ég sem hef haldið því fram að ég hafi aldrei farið á gelgjuskeiðið.....jú, það gerði ég. En eitt kom mér mest á óvart. Ég byrjaði að fikta við að reykja í frímínútum (eins og 90% af bekknum) þegar ég var á 14 ári. Núna er ég á 25 ári og er enn að fikta, úti á lífinu. Í 11 ÁR!!!!!!!!!!!! 11 ÁR!!!!!!!!!!! ELLEFU ÁR!!!!!!! EELLLEEFUUUU ÁÁÁÁÁRRR!
Þó að þessar staðreyndir komu mér úr jafnvægi í smá tíma, þá hjálpuðu þær mér að ákveða að nú er fiktið mitt Á ENDA. Þvílíkt endemis bévítans bandvitlausa rugl er þetta. Annað hvort sleppir maður þessu alveg eða reykir 1-2 pakka á dag. Ekki ætla ég að halda þessu sulli áfram, eina hér og eina þar! Oj , ég fer meira að segja hjá mér með því að segja ykkur frá þessari vitleysu.

"I am not young enough to know everything" -Oscar Wilde-

6 Comments:

Blogger Berndsen said...

Hvurslags eiginlega

febrúar 21, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

frekar fyndnar myndir af K og Þ... en til hamingju með að vera hætt að fikta. Ég er líka hætt því. Amen og halelúja!

febrúar 23, 2006  
Blogger Kata said...

AHAHAHAHAHA, þessi mynd af okkur er eins og hún sé tekin um 1970, við að slúðra "jiiii, hafiði heyrt þetta með hana Gunnu?" "göööövuð já, það er nú bara ekki af henni skafið"... Híhíhí, við erum orðnar gamlar. En ég vissi ekkert af saumó, hef ekki kíkt á bloggið mitt lengi lengi. Fer að kíkja í kaffi sæta, þetta gengur ekki að búa svona hlið við hlið og sjást aldrei!

febrúar 23, 2006  
Blogger Ms. Berger said...

hahaha frábær mynd! :)

febrúar 23, 2006  
Blogger berglind said...

Já mér líst nú ekkert á ad verid sé ad nota mann í einhvern áródur gegn reykingum...veit ekki hvad tetta á ad týda!!!

febrúar 25, 2006  
Blogger ingveldur said...

sammála Kata, við erum ekki að taka nágrannamálin nógu alvarlega! Þú ert velkomin í ruslið og draslið hjá mér og slúðra um mann og annann hvenær sem er.

febrúar 26, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home