fimmtudagur, september 18, 2003

dreymdi að ég væri komin með sex brjóst, vil ekki vita hvað hægt er að túlka út úr því.

Ég sat í mínu sakleysi í strætó áðan, þangað til ég heyri bakvið mig "heyrðu", svo aftur "heyrðu, geturu talað við mig svo ég sofni ekki". Þegar maður heyrir svona þá gerir dæmir maður þessa ókunnugu manneskju GEÐVEIKA. Þannig að ég ákvað að tala við greyið geðveiku manneskjuna svo að hún myndi ekki stinga mig í kviðinn, ég vil ekki verða fórnalamb geðsjúklings í 6:unni á leiðinni út á Granda. Passaði mig bara á að geðsjúklingurinn myndi ekki ná neinum upplýsingum út úr mér, þannig að ég spurði bara endalaust. Hann hét Björn og er í iðnskólanum, er alltaf á irkinu, og var svo þreyttur af því að hann horfði svo lengi á sjónvarpið í gær og þurfti svo að vakna snemma. Þá hafiði það, passiði ykkur á honum, svo er hann líka ógeðslega andfúll.

Ég er rosalega kvefuð

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home