miðvikudagur, október 22, 2003

er ekki viss um hvaða dagur er í dag, eða jú, það stendur hér lengst uppi til hægri, en samt. ég var að vakna úr þriggja daga dái. var með ómennskan hita og með óráði-það er eitt besta og þægilegasta ástand sem ég hef verið í, bulla bara, er algerlega ósjálfbjarga en er náttúrulega alveg skítsama um það, geri bara það sem ég vil og dett í hug-án ábyrgðar. En núna er ég komin í venjulegt veikindaástand, bara hósti og ringulreið. Þetta er víst flensan sem lamaði Þýskaland og er núna komin til Íslands, kom með einhverjum þýskum túristum, I suppose.
Það er sól úti, það er alltaf sól úti í Reykjavík. Veðrið er að breytast mikið, greinilega.
:)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home