miðvikudagur, september 21, 2005

ja herna

Komdu sæl Ingveldur.
Hef ítrekað reynt að ná til móður þinnar símleiðis en
ekki tekist, mun senda henni skriflega afsökun í dag.
Kveðja ÞH.


Sæll Þórhallur,
takk kærlega fyrir það. Og takk fyrir að svara mér í öll skiptin svona snögglega.
Ég skil samt ekki hversvegna ég fæ ekki svar við spurningu minni um ábyrgðina. Ég veit fyrir víst að það eru ofboðslega margir óánægðir með Strætó bs.=hvernig það er brotið gegn þeim sem greiðum fyrir miðann, og það er mjög leiðinlegt hvernig við öll erum bara látin standa úti í kuldanum.
Það er bara eins og við eigum að kyngja þessu óréttlæti og vona það besta næst!
Það er bara ekki nógu gott, því miður.
Þú getur sagt það við alla sem eru þarna að vinna með þér.
Svo þætti mér gott ef þú gætir bent mér á þann sem getur svarað spurningunni minni.

Kveðja Ingveldur

4 Comments:

Blogger t. said...

Fíla þig. og KLUKK!!

september 21, 2005  
Blogger Ms. Berger said...

Svölust! Mælist til þess að þú haldir námskeið í þessu, viss um að ófáir þurfi á því að halda!

september 21, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

þú ert æði pæði stelpa, þýðir ekkert að kyngja öllu, go girl!

september 21, 2005  
Blogger ingveldur said...

Takk stelpur! Þið eruð bestar! :*

september 22, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home